Viðburðir Allt

Ögmundarþing

  • Saturday 18. September 2010 kl. 13.00 -17.00

Þing haldið í minningu Ögmundar Helgasonar þjóðfræðings og cand mag í íslenskum fræðum.

 

Laugardaginn 18. september verður haldið í Norræna húsinu þing í minningu Ögmundar Helgasonar en hann lést fyrir rúmum fjórum árum.

Ögmundur var íslenskukennari í Menntaskólanum við Tjörnina (síðar við Sund) í áratug, stundaði síðan fræðistörf í Kaupmannahöfn 1983-1986, lengst af sem starfsmaður við Árnastofnun þar í borg. Hann varð starfsmaður við Handritadeild Landsbókasafns 1986 og síðar forstöðumaður þar. Einnig kenndi hann um árabil við Þjóðfræðideild HÍ.

Eftir Ögmund liggur fjöldi fræðigreina. Hann gaf einnig út stærri rit, ýmist einn eða í samstarfi við aðra.

 

Þingið er haldið að tilhlutan vina og ættingja Ögmundar. Í stuttum fyrirlestrum verða reifuð fjölbreytileg málefni sem öll snerta störf hans og áhugamál.

Þingið mun standa frá kl. 13 til 17.

 

Einnig verður kynnt væntanleg útgáfa bókar sem Ögmundur vann að. Er þar um að ræða þjóðsögur sem Guðmundur Sigurðsson vinnumaður frá Syðri-Gegnishólum í Flóa safnaði á sinni tíð.

 

Eftirfarandi fyrirlestrar verða fluttir:

„Horfinn tími”, Sjöfn Kristjánsdóttir handritafræðingur;

„Með liðnum tíma lúasporum fækkar”, Þórgunnur Snædal rúnafræðingur;

„Konur í Kaupmannahöfn”, Guðjón Friðriksson sagnfræðingur;

„Í litklæði fór hann og studdist við stoð”, Sölvi Sveinsson cand mag;

„Milli bols og höfuðs”, Páll Sigurðsson prófessor;

„Fardagaskáldið og bókmenntaunnandinn”, Gunnar Stefánsson dagskrárfulltrúi;

„Með Staðaröxl á bakinu”, Kristján Eiríksson sérfræðingur á Árnastofnun;

„Grýla í austri og vestri”, Kristín Einarsdóttir þjóðfræðingur;

„Að lesa í landið og tímann”, Helga Ögmundardóttir mannfræðingur.

 

Þá mun hljómsveit þjóðfræðinga flytja nokkur lög og Rósa Þorsteinsdóttir sérfræðingur á Árnastofnun kveða rímur.

 

Fundarstjórar verða Ólafur Ögmundarson og Ragna Ólafsdóttir.

 

Boðið verður upp á veitingar.

 

Ögmundarþing

Dagskrá:

 

Kl. 13:00

Þingið sett, Ólafur Ögmundarson;

„Horfinn tími”, Sjöfn Kristjánsdóttir handritafræðingur;

„Með liðnum tíma lúasporum fækkar”, Þórgunnur Snædal rúnafræðingur;

„Konurnar í Kaupmannahöfn”, Guðjón Friðriksson sagnfræðingur;

„Í litklæði fór hann og studdist við stoð”, Sölvi Sveinsson cand mag;

„Milli bols og höfuðs”, Páll Sigurðsson prófessor;

 

Kl. 14:30 Kaffihlé

 

Kl. 15:00

Hljómsveit þjóðfræðinga flytur nokkur lög ásamt Rósu Þorsteinsdóttur sérfræðingi á Árnastofnun;

„Fardagaskáldið og bókmenntaunnandinn”, Gunnar Stefánsson dagskrárfulltrúi;

„Með Staðaröxl á bakinu”, Kristján Eiríksson sérfræðingur á Árnastofnun;

„Grýla í austri og vestri”, Kristín Einarsdóttir þjóðfræðingur;

„Að lesa í landið og tímann”, Helga Ögmundardóttir mannfræðingur;

Rósa Þorsteinsdóttir kveður rímu.

 

Að dagskrá lokinni verður samverustund í anda hans sem minnst er og boðið upp á hressingu. – Maður er manns gaman – 

 

Fundarstjóri verður Ólafur Ögmundarson.

 

 

 

 

 


Leita á vefnum





Þetta vefsvæði byggir á Eplica