Beint í leiðarkerfi vefsins.
. Stefán Boulter sýnir málverk og grafík. Verkin eru gerð í anda þess sem hann kallar ljóðrænt raunsæi og hefur verið kennt við Kitsch.
Eldur, jörð, vatn og loft – og kosmos, náttúran leikur stórt hlutverk í myndum norsku listakonunnar Benthe Elisabeth.
Listmálararnir Stefán Boulter og Bente Elisabeth Endresen sýna í sýningarsölum Norræna hússins 21.ágúst - 12.september. Báðir listamennirnir hafa sýnt víða og hlotið mikið lof fyrir verk sín. Á sýningunni sýna þau olíumálverk en innblástur sinn sækja þau úr ólíkum áttum. Verk Stefáns miðla "ljóðrænu raunsæi" og verk Elisabeth vísa mikið til náttúrunnar.