Viðburðir Allt

Slippery terrain

  • Saturday 7. May 2011 - Sunday 29. May 2011

Slippery Terrain

 

Slippery terrain er hópur 6 listamanna frá Svíþjóð, Finnlandi, Kanada og Íslandi sem munu setja upp sýningu þar sem Friðlandið í Vatnsmýrinni og umhverfi Reykjavíkurtjarnar er aðal innblásturinn. Hópurinn vinnur út frá verkefni Norræna Hússins, Reykjavíkurborgar og Háskóla Íslands um svæðið og tekur sýn listamannsins á form, hlutverk og sambands mannsins í og við náttúruna og þær væntingar sem við gerum til umhverfisins. Hvert er hlutverk náttúrunnar í miðri borg? Getur hún orðið sjálfbær? Hver er framtíð hennar? Á sýningunni munu verða teikningar, ljósmyndir, málverk og textar auk vídeoverka. Listamennirnir munu einnig setja upp verk umhverfis tjörnina og vera með gjörninga.


Sýnendur eru Þóra Gunnarsdóttir, Elín Anna Þórisdóttir, Juliana Espana
Keller, Nina Lassila, Johanna Willenfelt og Diana Storasen




Leita á vefnum





Þetta vefsvæði byggir á Eplica