Viðburðir Allt

Þjóðararfur og hönnun

WORLD OF FOLK - fyrirlestur með Rögnu Fróða um hugmyndafræði Li Edelkoort

  • Saturday 11. February 2012 kl. 14.00
  • 200o kr
Ragna Fróðadóttir, hönnuður og listrænn stjórnandi hjá Edelkoort inc. mun halda fyrirlestur í Norræna húsinu 11.febrúar n.k.  kl. 14.00. Um er að ræða svokallað trend forecast sem fyrirtækið Edelkoort  er heimsþekkt fyrir. Í fyrirlestri sínum mun Ragna leggja áherslu á áhrif þjóðarmenningar á strauma og stefnur í hönnun.

Ragna Fróðadóttir nam textíl- og tískuhönnun  í París og Reykjavík. Eftir að hafa haldið úti eigin fatahönnunarmerki, Path of Love, í um áratug flutti hún til New York og hóf störf hjá alþjóðlega fyrirtækinu Edelkoort inc. Ragna Fróðadóttir tók þátt í Norræna tískutvíæringnum 2011 í Seattle.

Lengd: 90 mínútur

Miðaverð: 2000 kr.

Nánari upplýsingar: nh@nordice.is


http://ragnafroda.com/
http://www.edelkoort.com/
http://www.nordicfashionbiennale.com/nfb

Mynd: Ragna Fróða


Leita á vefnum





Þetta vefsvæði byggir á Eplica