Litla skrímslið er listræn leiksýning fyrir börn þar sem leikkonan notar pappír, tónlist og ljós til að segja þeim sögu. Sögu um það hvernig maður getur lært að elska - jafnvel skrímsli. Leikkonan býður börnunum inní hvítan pappírsheim. Pappírinn lifnar smám saman við og verður að persónum sögunnar. Aðal söguhetjan er drengur sem hefur nýlega eignast litla systur. Hann kemst reyndar fljótlega að því að hún er ekkert venjulegt barn heldur skrímsli sem ætlar að éta mömmu hans upp til agna og kannski bara allan heiminn.
Eftir sýninguna fá börnin svo tækifæri til að skapa úr pappírnum sem notaður var í sýningunni undir handleiðslu Helgu og Evu Signýjar sem báðar eru myndlistamenn.
"Efnið og efnistök eru einstaklega spennandi og áhugaverð og líkleg til að vekja börn til umhugsunar og þroska um það að eignast systkini. Það er tekið á algengum erfiðleikum í slíkum aðstæðum eins og afbrýðissemi en ekki síður á því jákvæða við það að eignast systkini.
Verkið fær mín bestu meðmæli."
Hugo Þórisson sálfræðingur
Sýningin er um 35 mínútur og listsköpunin á eftir um 45 mín.
Miðaverð: 1500kr.
Miðapantanir á www.midi.is og hjá Norrænahúsinu s: 551 7030
Sýningar verða:
laugardaginn 4.febrúar kl. 12.00 uppselt og 15:00 uppselt
sunnudaginn 5. febrúar kl. 15:00
laugardaginn 11.febrúar kl. 15:00
sunnudaginn 12. febrúar kl. 15:00
laugardaginn 18.febrúar kl. 15:00
sunnudaginn 19. febrúar kl. 14:00
laugardaginn 25.febrúar kl. 15:00
sunnudaginn 26. febrúar kl. 15:00
HELGA ARNALDS, höfundur, leikmyndahöfundur og flytjandi CHARLOTTE BÖVING, leikstjóri og meðhöfundur EIVÖR PÁLSDOTTIR, höfundur og flytjandi tónlistar HALLVEIG THORLACIUS, ljóðahöfundur PÁLL GUÐMUNDSSON, hljóðfærasmiður EVA SIGNÝ BERGER, búningahöfundur JÓHANN BJARNI PÁLMASON, ljósahönnuður ÚLFUR ELÍASSON, höfundur grunnhugmyndar