Netverk bókverka
Sýning í innri sal í Norræna húsinu – gengið inn frá bókasafni - 19. maí til 17. júní 2012
Í tengslum við ráðstefnuna Art in Translation og Sjálfstætt fólk á Listahátíð í Reykjavík
Fyrir um fimmtíu árum varð til hreyfing myndlistamanna sem unnu verk sín í bókarformi, sendu bækurnar sín á milli og komu sér þannig upp samstarfsneti sem fóstraði nýja og róttæka sýn á myndlist, samfélag og menningu. Á Íslandi voru listamenn sem snemma tileinkuðu sér þetta nýja tjáningarform – einkum þeir Dieter Roth og Magnús Pálsson – og lögðu grunninn að sterkri bókverkahefð sem síðari kynslóðir listamanna hafa nýtt sér til að koma hugmyndum sínum á framfæri og rækta tengsl við aðra framsækna listamenn um allan heim. Sýningin kannar þennan sterka þráð í íslenskri samtímalist og varpar ljósi á það hvaða hlutverki bókverkin gegndu í að rjúfa einangrun íslenskra framúrstefnulistamanna og gera þá að virkum þátttakendum alþjóðlega í nýlistinni.
Sýningunni Netverk Bókverka stýra Aðalheiður L. Guðmundsdóttir og Jón Proppé í samstarfi við nemendur í myndlistardeild Listaháskóla Íslands og listfræði við Háskóla Íslands.
Sýningin er í tengslum við alþjóðlegu ráðstefnuna Art in Translation sem haldin verður dagana 24. – 26. maí í Norræna húsinu og Öskju. Þar verður stefnt saman listamönnum og fræðimönnum og skoðaðir ýmsir fletir á ritlist, bæði í fræðilegum erindum og listrænum gjörningum.