Viðburðir Allt
AudibleDwelling

(I)ndependent People og Learning Site listatvíeykið

„Learning Site“ kalla  listakonurnar  Rikke Luther og Cecilia Wendt sig og í samstarfi við rithöfundinn Jaime Stapleton vinna þau að samtíma sviðsetningu.  Hópurinn lýsir starfi sínu sem vettvangi samræðna milli einstaklinga innan ólíkra greina lista og atvinnulífs – en sem eiga það sameiginlegt að vilja læra af umhverfi sínu og samfélagi.

Sviðsetningin er innblásin af hinum svokölluðu  Potemkín tjöldum eða þorpum  sem Grigory Potemkin setti upp til að slá ryki í augu Katrínar miklu á ferðum hennar um Rússland en keisaraynjan átti ekki að fá að líta eymdina sem við öllum blasti eigin augum.

„Learning Site“ skoðar sambandið milli yfirborðs og raunverulegs gildis með því að endurskilgreina byggingar sem staðið hafa auðar frá hruninu og þannig breyta þeim í banka þar sem annars konar gildi ráða ríkjum en áður.


http://independentpeople.is/



WWW.LEARNINGSITE.INFO

(I)-216x120

Verdlaunaveggspjald-Listahatidar-i-Reykjavik-2012.-Hofundur-Siggi-Eggertsson


  • 19.5.2012 - 17.6.2012