Viðburðir Allt
330

Fólk í mynd-List án landmæra -síðasta sýningarhelgi 12.-13.maí


Samsýning á portrettverkum. Áhugavert er að sjá hvernig hópur íslenskra listamanna nálgast hið aldargamla portrett. Þau vinna með fjölbreytta tækni, útfrá ólíkum forsendum en að sama viðfangsefni.

Um helgar fá gestir að spreyta sig á portrettinu í skemmtilegri smiðju og fá að gera sín eigin portrett undir handleiðslu listamanns. Þetta er eitthvað sem hentar allri fjölskyldunni. Þar verður sjónum beint að okkur, hvaða orð lýsa okkur og hvernig sjáum við okkur. Opið er frá 12.00 - 17.00 þriðjudaga – sunnudaga og stendur sýningin til sunnudagsins 13. maí.

  • 28.4.2012 - 13.5.2012