Teikningarnar fjalla um árstíðina miðsumar, Jónsmessubálið og fólkið í sumarnóttinni. Mótífin vísa meðal annars til verka norska málarans Nikolai Astrup. Hvert mótíf er endurtekið í fleiri teikningum og skapar þannig tilbrigði við stef; Bálið og fólkið í kring, dans lífsins og drauma. Serían “Sju sorter” fjallar um að sá sem tínir sjö ólík blóm á Jónsmessunótt og leggur undir koddan, mun sjá í draumi brúði sína eða brúðguma.
Kari Elise Mobeck er norsk listakona sem býr í Þrándheimi og hefur vinnustofu þar. http://lkv.no/k-kari-elise-mobeck.htm. Hún nam myndlist í Þrándheimi og í Reykjavík og vinnur jöfnum höndum með teikningar og skúlptúr. Hún hefur haldið sýningar í Noregi, Nýja Sjálandi og Færeyjum en þetta er hennar fyrsta sýning á Íslandi. Nefna má að hún hefur gert vatnspóstinn Vatnsveita, sem stendur við gönguleiðirnar í Nauthólsvík og á Sæbraut.