Viðburðir Allt
224-Goran-Nilsson---Steinthrykk-HC-II-IX---Landslag-48x60

Sýning úr Artótekinu

Úrval verka úr Artóteki Norræna hússins eru til sýnis í anddyri hússins frá 17. – 24. júlí.

Artótek Norræna hússins var stofnað árið 1974 og hefur að geyma grafík listaverk eftir norræna listamenn. Myndirnar á sýningunni eru lítið dæmi um þau fjölbreyttu verk sem er að finna í safninu.

Listaverkin eru lánuð út, í 3 mánuði í senn, til þeirra sem eiga bókasafnskort í bókasafninu.  Margir hafa nýtt sér þennan möguleika í gegnum árin sem leið til að kynnast norrænni grafíklist og um leið að lífga upp á tilveruna með listaverkunum.  Artótekið er að finna í kjallara Norræna hússins og er það opið á sömu tímum og bókasafnið, virka daga og um helgar kl. 12-17.

  • 17.7.2012 - 24.7.2012