Í sumar munum við bjóða upp á hressandi síðdegistónleika alla fimmtudaga kl. 16.30. Fyrstu tónleikarnir eru 21.júní sem er einmitt þjóðhátíðardagur Grænlands og hinir síðustu verða 30.ágúst. Nafnið Pikknikk vísar í þá nýjung í Norræna húsinu að nú er hægt að fá pikknikk-körfur í mótttökunni fullar af góðgæti.
Dagskráin;
21.júní Myrra Rós Þrastardóttir
28.júní Mikael Lind
5.júlí After Hours Trio
12.júlí Jazztríó Önundar
19.júlí Þoka
26.júlí Robert the Roommate
2.ágúst Hellvar
9.ágúst Byzantine Silhouette
16.ágúst Una Stefánsdóttir
23.ágúst Horse Orchestra
30.ágúst Árstíðir