Viðburðir Allt
Jimi-Tenor

Jimi Tenor syngur og sýnir

Finnska goðsagnið Jimi Tenor kemur til Reykjavíkur kringum Menningarnótt og mun vera með tvo mismunandi viðburði.

Hann mun halda tónleika í Norræna húsinu 17. ágúst kl. 21.00 sem upphitun fyrir Menningarnótt en hann er einstaklega frægur fyrir litríka og óhefðbundna tónleika.

Á Menningarnótt, 18. ágúst, mun hann hins vegar sýna minni fræga hlið af sér; ljósmyndun. Sýningin Autobahn opnar kl. 14.00 í kjallara hússins en kl. 15.00 og aftur kl. 16.00 mun hann fara í leiðsagnir um sýninguna.

Sýningin mun standa þar til 27. ágúst.

Á ferðum sínum um heiminn hefur Jimi Tenor myndað dýrin sem eru fórnarlömb hraðaaksturs og bílaumferðar en útkoman líkist abstrakt málverkum. 

Sýninguna styrkja:

KONE

Finnska sendiráðið á Íslandi

Menningarnæturpottur Landsbakans

Norræna húsið


Allir viðburðir eru hluti af Menningarnótt 2012 og eru ókeypis.

  • 17.8.2012 - 27.8.2012