Viðburðir Allt
Hugar(úr)vinnsla

Hugar(úr)vinnsla

 Eygló Benediktsdóttir og Ingibjörg Guðmundsdóttir stilla upp verkum sínum frá liðnum vetri í anddyri Norræna hússins 11. - 26. ágúst.


Efnislegur grunnur verkanna sem Eygló og Ingibjörg sýna er leir, en huglæga undirstöðu veiða þær báðar úr brunni persónulegra minninga. Tæknilega þekkingu og færni nota þær til að vinna fjölbreytileg verk s.s. skúlptúra og senur, þar sem efnið og ferlið á stóran þátt í hugamyndafræði og endanlegri útkomu.

 

Verk Ingibjargar spretta upp úr ásækinum hugarefnum, tilfinningum og skynjun hennar á umhverfi og upplifunum. Hún notar jöfnum höndum dót sem hún finnur og hluti sem hún formar í leir.

Eygló sækir innblástur sinn mikið úr náttúrunni. Þar sem form og litir hafa mikil áhrif, jafnan í bland við minningar frá barnæsku. Fyrir henni er mikilvægt að leyfa efninu að leiða sig áfram, ferlið verður partur af verkinu.

 

Á menningarnótt 18. ágúst á milli kl. 18:00-22:00 munu stöllur bjóða gestum inn í hugarheim verkanna og verður gjörningur framinn.

 Hugurvinsla_bodskort

www.ingagumma.net

www.eygloben.com

  • 11.8.2012 - 26.8.2012