Viðburðir Allt
DropbyDrop

Dropi við dropa

Dropi við dropa sýning 28.júlí – 6.ágúst í anddyri Norræna hússins.

20 prentaðar auglýsingar um vatnsskort og hagkvæma nýtingu auðlinda

Tilgangur sýningarinnar er að draga athygli að vaxandi vatnskrísu heimsins.

Sýningin sýnir 20 bestu framlög í samkeppni sem Sameinuðu Þjóðirnar skipulögðu þar sem hanna átti prentauglýsingu sem veitti öðrum innblástur til að spara vatnið – nú og fyrir komandi kynslóðir. 

Meira en 3500 framlögum var skilað inn og er hægt að sjá þau á síðunni www.dropbydrop.eu.

Samkeppnin var hluti af “Framtíðin sem við kjósum”, alþjóðlegri herferð Sameinuðu Þjóðanna í tilefni Rio+20 ráðstefnunnar um sjálfbæra þróun í júní 2012.


Vissirðu að….

-          Um það bil 70% jarðarinnar eru þakin vatni, líkt og 70% mannslíkamans er samansett úr vatni.

-          97% af þessu er saltvatn, einungis 3% af vatni jarðarinnar er ferskvatn og einungis 1% af öllu vatni heimsins er drykkjarhæft.

-          Þú getur lifað í mánuð án matar en einungis viku án vatns.

-          Til að framleiða einn hamborgara þarf 11.000 lítra af vatni og það sama gildir um framleiðslu á einu pundi af kaffi.

-          Til að framleiða eitt glas af mjólk þarf 200 lítra af vatni og 1.000-3.000 lítra til framleiðslu á einu kílói af hrísgrjónum.

-          Vatnsskortur háir 40% mannkynsins. Yfir 5000 manns, aðallega börn, deyja á degi hverjum vegna þess að þau hafa ekki aðgengi að hreinu drykkjarvatni.

-          Árið 2040 mun eftirspurn mannkynsins eftir vatni fara allt að 40% fram úr framboði á vatni.

  • 28.7.2012 - 6.8.2012 - Norræna húsið