Viðburðir Allt
DSC_0210

Vatnslita sýning Lars Lerin

Norræna húsið sýnir vatnslitamyndir Lars Lerin 23.júní til 12.ágúst í sýningarsal hússins

Vatnslitatæknin er kraftmikið verkfæri  listamannsins Lars Lerin.

Hann þekkir vel möguleika vatnslitanna og  hefur sætt sig við duttlungafullt eðli þeirra. Fyrirmyndirnar eru frá heimkynnum hans. Hann óx upp nálægt skógunum miklu í Värmlandi með birtu sumarnáttanna og myrkur vetursins að föruneyti.

Í  Lófóten  kynntist hann hafinu og sjóndeildarhringnum. Hann þekkir mikilfengleik náttúrunnar og erfið lífskjör mannanna og  snýr stöðugt aftur að hýbýlum og vinnu þeirra í list sinni. Minni, minningar, orð, merkingar og myndbrot koma tíðum fyrir í myndum hans, brot af minningum, sem skilja eftir minni um líf og hlýju sem kannski er horfin.

Einhvers konar fortíðarþrá og tilvistarleg löngun, sem við könnumst öll við.

Bera Nordahl, Nordiska Akvarellmuseet



  • 23.6.2012 - 12.8.2012