Sýning um fuglana, gróðurinn og mannlífið í Vatnsmýrinni, um náttúruna í borginni og mikilvægi endurheimtar votlendisins.
Sýningin stendur frá 5. september til 4. nóvember 2012.
Náttúruskóli Norræna hússins - fjölskyldudagskrá.
Ratleikur með spurningum og verkefnum sem fjölskyldan leysir saman.
Opið kl. 12– 17. Lokað á mánudögum.
Norræna húsið, Háskóli Íslands og Reykjavíkurborg hafa nú í sameiningu hafist handa við að endurheimta votlendið í Vatnsmýrinni og virkja friðinn í varplandinu; opna rásirnar, auka vatnsflæðið um svæðið og tengja það hringrás vistkerfanna.
Gamalt iðnaðarrusl, ágeng dýr og stórvaxnar jurtir hafa stuðlað að líffræðilegri einhæfni og raskað jafnvægi lífríkisins. En mesti spillikötturinn af öllum er mannskepnan.
Fá vatnasvæði í heiminum eru enn óspillt. Um áttatíu prósent alls votlendis hér á landi er nú ónýtt og virkar ekki. Mýrar hafa í stórum stíl verið þurrkaðar upp og ræstar fram vegna búskapar og borga. En á seinni hluta tuttugustu aldar tóku þjóðir heims sig saman og skrifuðu undir samning um verndun votlendis.
Hvers vegna? Á sýningunni um Vatnsmýrina er leitast við að svara þeirri spurningu.
Halldór Laxness skrifaði grein árið 1970 til varnar votlendinu og líkti mýrunum við lungu landsins vegna áhrifa þeirra á andrúmsloftið.
Mýrar eru mjög mikilvægar vatnshringrásinni og því hefur þeim einnig verið líkt við nýru. Og ef líkja á landslagi borgarinnar við líkama þá mætti alveg segja að Vatnsmýrarsvæðið hafi um tíma verið gert að endastöð í meltingarvegi borgarinnar því þangað var skólpinu veitt og þar voru ruslahaugarnir.
Skemmtilegra væri þó að hugsa sér Vatnsmýrina sem fæðingarveg borgarinnar. Skúli fógeti, sem kalla má ljósmóður Reykjavíkur, sótti mó í mýrina, móinn sem varð eldsneyti uppbyggingar og nýsköpunar.
Vatnsmýrina mætti jafnvel ímynda sér sem heilabú borgarinnar; sameiginlega undirmeðvitund borgarbúa þar sem gamlir draumar geymast og nýir fæðast; staður samvisku og skilnings á heildarsamhengi. Þegar við leggjum höfuð í bleyti rifjast upp möguleikar mýrarinnar.
Á þessari sýningu eru dregin upp brot úr marglaga lífi og sögu Vatnsmýrarinnar. Hún er hugsuð til að efla vitund nemenda og alls almennings um náttúruna innan í borginni og borgina innan í náttúrunni.
HÉR má sjá myndir frá Náttúruskóla Norræna hússins.