Föstudagskvöldið 10.febrúar kl. 20 - 23
Á safnanótt verður rafmögnuð dagskrá í boði í Norræna húsinu. Ljósmyndasýningin 2 mínútur er í anddyri Norræna hússins og lifandi götulist er í sýningarsal í kjallara. Þar verður enn fremur lifandi tónlist og poppkornsstemning. Bókasafnið er opið og við hvetjum alla til að gerast lánþegar og njóta safnkostsins sem er einstakur.
2 mínútur
Regin Weihe Dalsgaard sýnir myndir af grindhvaladrápi í Færeyjum á sýningunni sinni "2 mínútur" sem opnar 14.janúar og stendur til og með 12. febrúar. Myndirnar varpa óvenjulegu ljósi á viðfangsefnið. Meginþema sýningarinnar eru viðbrögð áhorfenda við grindhvaladrápunum en ekki drápin sjálf. Sjón er sögu ríkari.
Ungt fólk er sérstaklega velkomið. Húsið verður opið til kl. 23.00.
VÄGGAR-götulist
Samsýning níu götulistamanna í samstarfi við netgalleríið Muses.is. Listamennirnir hafa fært listsköpun sína frá veggjum götunnar inn í hið hefðbundna sýningarrými gallerís. Verkin eru undir sterkum áhrifum frá götulistinni og birtast þau í ýmsum formum. 28.janúar – 26.febrúar 2012
Listamenn sýningarinnar VÄGGAR munu skapa sannkallaða götustemningu í kjallara Norræna hússins; hluti þeirra mun vinna í verkum sínum, það verður tónlist, nýlenduvöruverzlun og gestum verður boðið uppá ferskt og brakanadi poppkorn.
Ísland Panorama
Stuttmyndin "Inn við beinið erum við öll eins" er sýnd í fundarherbergi Norræna hússins. Myndin verður sýnd viðstöðulaust á Safnanótt. Ísland Panorama stendur fyrir þessum viðburði