Viðburðir Barnadagskrá

Mosi og haf: myndræn frásögn frá Grænlandi

  • Sunday 10. January 2010 kl. 14.00 -15.00

10.janúar kl. 14.00 verður ljósmyndarinn Fiann Paul með leiðsögn um ljósmyndasýninguna ”Að finna goðsögnina í sjálfum sér” í Norræna húsinu, auk þess mun hann segja frá dvöl sinni á Grænlandi og sýna áður óbirtar ljósmyndir þaðan.

Fiann Paul opnaði tvær ljósmyndasýningar 9.desember s.l í Ráðhúsi Reykjavíkur og Norræna húsinu. Á sýningunni í Ráðhúsinu eru myndir sem prýða bók Fianns Paul: Goðsögnin, en hún kom út á vegum Sölku forlags í desember.

Myndirnar í Norræna húsinu eru hins vegar af öðrum toga, þær eru allar teknar á Grænlandi og býr mikil saga á bak við tilurð þeirra og  tökurnar sjálfar.

Myndirnar eru allar teknar á Grænlandi og var mikið lagt í tökurnar. Fyrirsæturnar á myndunum setja sig í ævintýralegar stellingar og ríkir goðsögulegur blær yfir myndunum. Á myndunum má m.a. sjá fegurðardrottningu Grænalands, frækna veiðimenn og einnig eru börn af munaðarleysingjahæli á Gærnlandi í stóru hlutverki. Þau eru hér sett í hlutverk hetjunnar og þess sem kemst af en eru þó vön því að öllu jöfnu að vera sett í hlutverk fórnarlambsins þegar fjallað er um aðstæður þeirra í lífinu.

Fiann dvaldi í nokkra mánuði á Grænlandi við tökur en einnig hannaði hann alla búninga sem notaðir eru í myndatökurnar. Á meðan Fiann Paul dvaldi á Grænlandi var hann með smiðjur fyrir börn og hélt mörg erindi um störf sín .

Í Norræna húsinu þann 10.janúar n.k. kl. 14.00 ætlar hann, auk þess að vera með leiðsögn, að segja frá dvöl sinni á Grænlandi og sýna myndir sem enn hafa hvergi birst. Erindið er í raun ævintýri og nefnir Fiann það Mosi og haf: Myndræn frásögn frá Grænlandi. Ævintýrið mun varpa ljósi á menningu innfæddra og hvaða áhrif nýlendustefnan hefur haft á þá menningu. Viðburðurinn fer fram á ensku en ætti að höfða til ungra sem aldna því myndir segja meira en þúsund orð.


Leita á vefnum





Þetta vefsvæði byggir á Eplica