Viðburðir Barnadagskrá

Tungumálanámskeið fyrir börn í norsku, sænsku og finnsku.

  • Saturday 26. June 2010
  • Monday 17. May 2010
  • Saturday 27. February 2010
  • Saturday 6. February 2010
  • Saturday 30. January 2010

Talnámskeið í dönsku

Á  mánudögum kl. 17:00 – 18:30 frá 22. febrúar til 22. mars – 5 skipti

fjoregg_logo_norraenaTalnámskeið í dönsku fyrir áhugafólk um rúllandi err. Námskeiðið er tilvalið fyrir þá sem vilja geta sagt rødgrød med fløde eins og innfæddir og er sérsniðið að þörfum þeirra sem hyggjast flytja utan vegna náms eða vinnu. Áhersla verður lögð á talað mál og orðaforða sem nýtist í daglegu lífi. Kennari er Niels Johannsen.

 

Sænskunámskeið

Á þriðjudögum kl. 19:30 – 21:00 frá 23. febrúar til 23. mars – 5 skipti

Bæjarins besta korv fyrir þá sem hafa ekki með sér smörgås. Hagnýtt námskeið í sænsku fyrir þá sem hyggjast flytja til Svíþjóðar eða vilja hreinlega skilja frændur okkar betur. Áhersla verður lögð á talað mál og orðaforða sem nýtist í daglegu lífi. Kennari er Adolf Petersen.

 

SÆKJA FJÖREGG_BÆKLING

Norskunámskeið

Á mánudögum kl. 19.30 – 21:00 frá 22. febrúar til 22. mars – 5 skipti

Heja Norge! Kjempebra námskeið í norsku þar sem áhersla verður lögð á talað mál og orðaforða sem nýtist í daglegu lífi. Námskeiðin henta til dæmis þeim sem hyggjast flytja til Noregs vegna vinnu eða náms. Kennari er Hermann Bjarnason.

 

Finnskunámskeið

Á þriðjudögum kl. 17:30 – 19:00 frá 23. febrúar til 23. mars – 5 skipti

Yksi kaksi kolme...og hvernig var nú framhaldið? Stutt námskeið í finnsku fyrir byrjendur sem vilja geta talið upp í að minnsta kosti tíu. Kennd verða undirstöðuatriði í málinu, farið yfir orðaforða og málfræði. Kennari er Tuomas Järvelä.

 

Dönskuklúbbur fyrir börn

Á fimmtudögum kl. 17:00-18:30 frá 4. mars til 15. apríl – 6 skipti

Við opnum húsakynni okkar fyrir börn á aldrinum 6 – 10 ára sem vilja viðhalda kunnáttu sinni í danskri tungu. Boðið verður upp á þjálfun í tungumálinu gegnum leiki, þrautir, lestur og spjall. Dönskuklúbburinn er ætlaður börnum sem búið hafa í Danmörku eða eiga danska foreldra.

 

Námskeið fyrir fullorðna kosta 8.500 kr. en félagar í Norræna félaginu fá afslátt og greiða 5.000 kr. Dönskuklúbburinn er ætlaður börnum félagsmanna og kostar 2.000 kr.

 

ATH! Auðvelt er að gerast félagi í Norræna félaginu. Félagsaðild kostar aðeins 2.500 kr. á ári / 1.250 kr. fyrir 18-27 ára og 67 ára og eldri.

 

Öll námskeiðin fara fram í húsnæði Norræna félagsins, Óðinsgötu 7. Skráning og nánari upplýsingar fást hjá Norræna félaginu í síma 5510165 og á netfanginu alma@norden.is.

Norska

 

Norskuskóli fyrir börn: Söngur og leikir

 

Norræna húsið og lektor í norsku við Háskóla Íslands standa fyrir norskuskóla fyrir börn á aldrinum 2-7 ára sem búa yfir nokkurri kunnáttu í norsku. Í skólanum gefst þeim tækifæri til þess að auka færni sína í töluðu máli.

 

Matja Dise Steen kennir á námskeiðinu en hún hefur starfað með Suttung-hreyfingunni í Noregi en sú hreyfing leggur áherslu á ljóðlist, leikhús og tónlist í uppeldisfræðum sínum.

 

Tímar eru einu sinni í mánuði fram á sumarið og verður fyrsti tíminn laugardaginn 23. janúar klukkan 14 í barnahelli í bókasafni Norræna hússins. Skráning fer fram hjá Tiril Myklebost (ttm@hi.is), lektor í norsku við HÍ.

Laugardagurinn 27. febrúar kl. 14-15

Laugardagurinn 27. mars kl. 14-15

Laugardagurinn 17. apríl kl. 14-15

Laugardagurinn 15. maí kl. 14-15

Laugardagurinn 12. júní kl. 14-15


 

Finnska

Finnskuskóli fyrir börn: Kalevala-ævintýrið

 

Finnskuskólinn (Suomi-koulu), lektor í finnsku við Háskóla Íslands og Norræna húsið standa að samverustundum á finnsku fyrir börn á aldrinum fimm til tólf ára þar sem þau kynnast Kalevala-sagnabálkinum í gegnum ýmiss konar leiki og söngva.

 

Fyrsti tíminn verður í bókasafni Norræna hússins, sunnudaginn 31. janúar klukkan 15. Alls verða kennslustundirnar fimm og verður skipulag námskeiðisins kynnt nánar í fyrsta tímanum. Kennari er Maare Fjällström (maare@hi.is), lektor í finnsku.

 

Finnskufundir

 

Opinn hópur fyrir ungt finnskumælandi fólk eða fyrir þá sem eru að læra, eða hafa lært, finnsku og vilja þjálfa sig í notkun talaðs máls. Við hittumst á kaffihúsum, horfum á finnskar bíómyndir eða förum jafnvel á skauta.

 

Það er ekki nauðsynlegt að vera altalandi á finnsku til þess að taka þátt í fundunum en umræður fara fram á finnsku, íslensku og ensku. Upplýsingar um fundina eru sendar í gegnum póstlista sem má skrá sig á hjá lektornum í finnsku, Maare Fjällström (maare@hi.is).

Sænska

Sænskunámskeið fyrir börn

 

Norræna húsið, sænska félagið á Íslandi og sendiráð Svía standa fyrir námskeiðum fyrir börn í sænsku. Aðaláhersla verður lögð á þátttakendur fái tækifæri til þess að tjá sig á sænsku í gegnum leik, lestur og söng, svo og með því að hittast og spjalla saman. Námskeiðið er opið börnum sem hafa nokkra kunnáttu í sænsku, vilja halda henni við eða auka við hana.

 

Skráning á námskeiðið fer fram hjá Åsa Bergdahl (asaberg@simnet.is), formanni sænska félagsins á Íslandi.

 

Dagskrá námskeiðsins:

 

Laugardagur 30. janúar

Sögustund í bókasafni Norræna hússins

Lesnar verða klassískar sænskar barnabækur, til dæmis Alfons Åberg, Pippi Långstrump og Emil i Lönneberga.

 

Laugardagur 6. febrúar

Sænskar barnamyndir

Sýndar verða Bolibompa, Myror i brallan, Alfons Åberg og 5 myror är fler än 4 elefanter.

 

Laugardagur 27. febrúar

Páskaföndur

Norræna húsið býður til páskaföndurs; eggjamálun, fjaðrir til að skreyta trjágreinar og ýmisleg fleira skemmtilegt.

 

Laugardagur 17. apríl

Mulle-skola í Heiðmörk

Í mulle-skóla kynnast börn náttúrunni á ýmsan hátt. Þau læra að umgangast umhverfið af virðingu, læra að þekkja plöntur og tré og fara í leiki úti í náttúrunni.

 

Laugardagur 26. júní

Midsommar

Hátíðahöld að hætti Svía þar sem dansað verður í kringum blómum skrýdda stöng og sungið.

 

 




 


Leita á vefnum





Þetta vefsvæði byggir á Eplica