Skjólgóði sandkassinn
Skjólgóði sandkassinn
Skjólgóði sandkassinn teygir sig mót sólu á lóð Norræna hússins
Stavanger í Noregi hefur gefið Norræna húsinu 6 metra háan sandkassa hannaðan af teiknistofunni Happy Space í Svíþjóð. Sandkassinn var fyrst vígður þegar Stavanger var ein af menningarborgum Evrópu. Nú rís hann upp á lóð Norræna hússins, fyrir alla að njóta. Sandkassinn er með yfirbyggingu sem skapar skjólið, þessi yfirbygging er 6 metra há og úr krossviði og viðarlistum. Í kringum sandkassann verður leiksvæði með birkitrjám og þar verða einnig staðsettar vatnstilraunir Tilraunalands Norræna hússins og Háskóla Íslands. Áætlað er að vígja útisvæðið 15.maí n.k.
Sandkassi fyrir alla
Skjólgóði sandkassinn er rými fyrir leik og afslöppun í sameiginlegau borgarrými okkar allra. Skjólgóði sandkassinn býður upp á leik og er afdrep frá hversdagsleikanum. Gegnsæ byggingin fangar kraftmikla geisla sólarinnar og úr verður ný útgáfa af sameiginlegu sólúri mitt í umferðarasa borgarinnar.
Rísandi sólúr
Skjólgóði sandkassinn er í raun ljósinnsetning. Verkið teiknar gang sólarinnar yfir himinhvolfið sem skyggir á völlinn og rýmið. Í húmi nætur er hann sjálflýsandi séð frá norðir að utan og innan. Rýmið er síbreytilegt með samspili ljóss og skugga.
Viti
Innsetningin er samræða við sameiginleg rými í borgarumhverfinu og mótuð og samræða við slík rými. Á kvöldinn fær skjólgóði sandkassinn nýtt hlutverk; hann verður viti og varða sem bindur saman hverfi borgarinnar.
Verið eins og heima hjá ykkur
Sandkassinn er tímabundið listaverk, sett saman með trélistum og nöglum-svo ekki er hægt að klifra í upp og meiða sig. Við beinum því þeim tilmælum til gesta sandkassans að gæta þess að börnin fari ekki að klifra upp.
Velkominn inn!
Myndir e. Magnús Helgason:





