Ráðstefna á vegum Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands, Sagnfræðistofnunar og English-Speaking Union of Iceland, fimmtudaginn 31. maí kl. 11:30 til 13:30 í Norræna húsinu. Á ráðstefnunni verða meðal annars kynnt ný skjöl um breska utanríkisstefnu, sem gefin hafa verið út í ritröð breska utanríkisráðuneytisins, og greint frá umfjöllun sagnfræðinga í nýjasta hefti Scandinavian Journal of History. Ráðstefnan er öllum opin. Sjá dagskrá á heimasíðu Alþjóðamálastofnunar http://stofnanir.hi.is/ams