Norrænn Jazz í Norræna húsinu 13/2 kl: 17:00

  • laugardagur, 13. febrúar 2010, kl. 17.00
  • 2000 kr.

PELbO (NO)

Plebo-myndPELbO Rödd, túba og trommur! Óvenjulegt? Ójá.

PELbO er hljómsveit sem dokar ekki við á hefðbundnum landamærum tónlistarstíla.

Þegar þessi óvenjulega hljóðfæraskipan blandast við lifandi elektróník og óvægna

sviðsframkomu verður blandan algerlega einstök. Hver segir að túba geti ekki verið

sexí? PELbO var í úrslitum í ZOOM- leit Norðmanna að bestu tónleikasveitinni í

fyrra, en þá deildu þau líka fyrstu verðlaunum í Young Jazz Comets keppninni, með Reginfirru frá Íslandi.


PLOP1_480x320-myndPLOP (FIN)

Finnskur verðlaunajazz!

Mikko Innanen, saxófónn, Joonas Riipa,  trommur,  Jonas Westergaard, bassi.

Saxófónleikarinn Mikko Innanen hlaut hin eftirsóttu Yrjö verðlaun finnska Jazz-sambandsins 2008 og hefur brýnt spunavopn sitt í félagi við alla

bestu boðbera frjálsjazzins undanfarin ár. Trommarinn Joonas Riipa er eftirsóttasti trommari finnsku jazzsenunnar. Gestur þeirra í fjarveru Ville Herrala er danski bassaleikarinn Jonas Westergaard sem þegar er orðinn einn vinsælasti

gæslumaður lágtíðninnar á Norðurlöndum. Plop hefur starfað í þrjú ár og leitar hins gullna jafnvægis á milli fyrirfram ákveðinna tónsmíða og þeirra sem fæðast á sviðinu. Hlýja náttúrulegra sem yfirnáttúrulegra hljóða í djúpri og ævintýralegri sveiflu.







Þetta vefsvæði byggir á Eplica