Beint í leiðarkerfi vefsins.
Embætti landlæknis, Matvælastofnun og Rannsóknastofa í næringarfræði við Háskóla Íslands og
Landspítala háskólasjúkrahús kynna fyrstu niðurstöður úr umfangsmikilli könnun á mataræði
landsmanna (18-80 ára), en hliðstæð rannsókn fór síðast fram árið 2002. Frá þeim tíma hefur margt
breyst í lífsháttum og aðstæðum fólks, nýjar matreiðsluaðferðir hafa þróast og nýjar og breyttar
fæðutegundir hafa rutt sér til rúms.
Inngangur og aðferðir - Ingibjörg Gunnarsdóttir, prófessor í næringarfræði
Rannsóknastofa í næringarfræði
Helstu niðurstöður - Hólmfríður Þorgeirsdóttir, næringarfræðingur
Embætti landlæknis
Fundarstjóri: Jón Gíslason, forstjóri
Matvælastofnun
Fundurinn er öllum opinn og ekki þarf að skrá sig.
