Viðburðir Ráðstefnur og málþing

Stofnfundur Samtaka lífrænna neytenda

  • Monday 7. March 2011 kl. 19.30
  • Norræna húsið

Stofnfundur Samtaka lífrænna neytenda verður í Norræna húsinu 7.mars kl. 19:30 . Tilgangur samtakanna er að stuðla að aukinni framleiðslu og neyslu vottaðra lífrænna vara á Íslandi með velferð almennings, búfjár og umhverfisins að leiðarljósi.
 
Þá er markmið samtakanna að efla miðlun upplýsinga um lífrænar afurðir og framleiðslu þeirra, hvetja til aukinnar neyslu á vottuðum lífrænum vörum, vekja athygli á kostum lífrænna aðferða og nauðsyn bættrar meðferðar búfjár, veita markaðinum aðhald um bættar merkingar og aukið framboð lífrænna afurða, og stuðla þannig að heilbrigðum lífsstíl og heilnæmu umhverfi.

Dagskrá fundarins verður efirfarandi:
 
19:30 - Inngangsorð: Oddný Anna Björnsdóttir
19:40 - Kjör fundarstjóra og ritara
19:45 - Fundurinn formlega settur
19:50 - Erindi um mat og heilsu í iðnvæddum heimi: Dr. Kristín Vala Ragnarsdóttir, forseti Verkfræði- og náttúruvísindasviðs HÍ
20:10 - Tillögur og umræður um fyrirkomulag samtakanna
20:40 - Hlé, skráning í framkvæmdanefnd og faghópa
21:10 - Kynning á framkvæmdanefnd og faghópum
21:20 - Almennar umræður
21:30 - Fundi slitið
 
Boðið verður upp á léttar lífrænt vottaðar veitingar/smakk.
 
Á staðnum verður upplýsingamiðstöð um lífrænan landbúnað og framleiðsluaðferðir.
 
Í undirbúningsnefnd stofnfundarins eru:
 
Björg Stefánsdóttir, skrifstofustjóri NLFÍ
Dominique Plédel Jónsson: Formaður Slow Food
Eygló Björk Ólafsdóttir: Slow Food og Vallanes/Móðir Jörð
Guðmundur R. Guðmundsson: Nefnd um Græna hagkerfið
Guðrún Helga Guðbjörnsd.: Brautarstjóri garðyrkjuframleiðslu hjá LBHÍ
Guðrún Hallgrímsdóttir: Stjórnarmaður og formaður vottunarnefndar Túns
Guðrún Tryggvadóttir og Einar Bergmundur: Náttúran.is
Gunnar Á Gunnarsson: Framkvæmdastjóri Vottunarstofunnar Túns
Kristín Vala Ragnarsdóttir: Forseti Verkfræði- og náttúruvísindasviðs HÍ
Ólafur Dýrmundsson: Landsráðunautur í lífrænum landbúnaði
Oddný Anna Björnsdóttir: Stjfm Lifandi ehf og stofnandi SLN á FB
Sirrý Svöludóttir: Lífrænn bloggari og markaðsstjóri Yggdrasils


Leita á vefnum





Þetta vefsvæði byggir á Eplica