Beint í leiðarkerfi vefsins.
Í fyrsta sinn vinna hjónin Þórður Hall og Þorbjörg Þórðardóttir saman að sýningu. Tilefnið eru tveir tyllidagar í lífi hjónanna. En þau urðu bæði sextug á árinu. Verkin samanstanda af listvefnaði og málverkum. Um verk sín segir Þorgbjörg: „Hugmyndir að verkunum sæki ég til íslenskrar náttúru og vinn úr þeim á óhlutbundinn hátt. Þetta eru minningarbrot af náttúrufyrirbærum þar sem samspil efnis og áferðar er mikilvægur þáttur”. Þorbjörg segir að það sé langur vegur að frumhugmynd yfir í vef, hún vinnur með ull, hör, hamp, sísal og hrosshár sem hún litar, spinnur og meðhöndlar sérstaklega. 
Þórður segir um sín verk: „Uppsprettan að myndum mínum er íslensk náttúra, margbreytileiki hennar, samspil forma og ljóss í misjöfnum veðrum og árstímum. Einnig höfðar öræfakyrrðin sterkt á mig með sinni ógnvekjandi þögn þar sem skynja má andardrátt hins lifandi lands sem enn er í mótun. Fyrir mig er mikið atriði að vera í snertingu og halda tengslum við náttúruna sem er mér mikill fjársjóður í öflun myndefnis”. Myndir Þórðar eru unnar í olíu á striga.