Viðburðir Sýningar

Að finna goðsögnina í sjálfum sér

Ljósmyndasýning Fiann Paul í Norræna húsinu.

  • Wednesday 9. December 2009 - Sunday 10. January 2010

Að finna goðsögnina í sjálfum sér

 

Ljósmyndarinn Fiann Paul er án efa þekktastur á Íslandi fyrir portrettmyndir sínar af börnum sem héngu á horni Lækjargötu og Austurstrætis fyrr á þessu ári.

Nú hefur SALKA gefið út bók eftir hann þar sem sameinast ljósmyndir hans og persónuleg þroskasaga frá því hann bjó og starfaði í Himalajafjöllum. Sagan minnir okkur á hve mikilvægt það er að finna rætur sínar og sinn innsta kjarna sem Fiann segir að sé að finna í íslenskri náttúru og okkar forna söguarfi.

Í tilefni af útgáfu bókarinnar sýnir Fiann nú myndir sínar bæði í anddyri Norræna hússins og í ráðhúsi Reykjavíkur. Myndirnar sem eru til sýnis í Norræna húsinu eru allar teknar á Grænlandi og hefur Fiann tekist að fanga grænlenska náttúru á einstakan hátt. Myndir hans eru leyndarsdómsfullar,  ævintýralegar og virkja ímyndunaraflið á skemmtilegan hátt.

Mikið var lagt í myndatökuna á Grænlandi og voru t.d. allir búningar og fylgihlutir sérstaklega búnir til að þessu tilefni. Fiann hannar marga búningana sjálfur en var einnig með stóran hóp grænlendinga sér til aðstoðar. Myndirnar vísa til goðsögulegs heims og var reynt að fara eftir lýsingum á vopnum og klæðaburði úr gömlum sögnum.


Greenland-(1)

Ein af myndum Fiann Paul í Norræna húsinu


Leita á vefnum





Þetta vefsvæði byggir á Eplica