Viðburðir Sýningar

Mánudagsbíó-Låt den rätte komma in (Let the Right One In)

  • Monday 18. January 2010 kl. 20.00

Sýnd verður sænska kvikmyndin Låt den rätte komma in (Let the Right One In) frá árinu 2008. Hún er byggð á samnefndri bók eftir sænska rithöfundinn John Ajvide Lindquist en hann er jafnframt handritshöfundur myndarinnar. Leikstjóri er Tomas Alfredson.

Í myndinni segir frá 12 ára dreng sem býr í úthverfi Stokkhólms og þarf að þola stríðni af hálfu jafnaldra sinna. Hann kynnist vampírustelpu og fjallar myndin um vináttu þeirra.

Þegar Låt den rätte komma in var frumsýnd vakti hún samstundis mikla athygli og hlaut einróma lof gagnrýnenda. Myndin var sýnd í kvikmyndahúsum á Íslandi síðastliðið vor og vakti mikið umtal og hrifningu áhorfenda.

Úlfhildur Dagsdóttir mun kynna myndina áður en sýningin hefst og fjalla um hrollvekjur og vampírumyndir en upp á síðkastið hafa vampírur og varúlfar verið sérlega vinsælt umfjöllunarefni, bæði í bókmenntum og bíómyndum.

            Aðgangur er ókeypis. Sýningin hefst klukkan 20.


Leita á vefnum





Þetta vefsvæði byggir á Eplica