Beint í leiðarkerfi vefsins.
Norrænn jazz á Safnanótt í Norræna húsinu kl. 20 – 24
Norrænn jazz með þátttöku jazzleikara frá Íslandi, Finnlandi og Noregi. Tónleikar á klukkutíma fresti!
Sýningarsalur í kjallara hússins: Sýning á veggspjöldum Helga Hóseassonar
Sýning á veggspjöldum Helga Hóseassonar heitins. Helgi var þekktur fyrir mótmæli sín allt frá árinu 1962 og var oft nefndur Mótmælandi Íslands. Hann var þekktur fyrir mótmæli sín gegn ríki, dómstólum og kirkju landsins. Helgi var var líka þekktur fyrir að hafa slett skyrhræningi á forseta Íslands, biskup og alþingismenn við setningu Alþingis árið 1972.
Anddyri: Sýningin 52 húfur
Snillingurinn Alvar Aalto
Í bókasafni Norræna hússins er sérstök sýning á bókum um arkítekt hússins Alvar Aalto.