Beint í leiðarkerfi vefsins.
Sýningin 52 Húfur er afrakstur þess markmiðs sem Edda Lilja Guðmundsdóttir setti sér fyrir árið 2009, að gera 52 húfur á 52 vikum. Skilyrðið var að engar tvær húfur væru eins og að þær væru allar gerðar úr garni sem hún átti til þegar markmiðið var sett. Húfa hverrar viku var birt á netinu hvern fimmtudag og mátti aldrei sjást sama módelið tvisvar. Húfurnar eru nú í fyrsta skipti sýndar allar á sama stað í anddyri Norræna hússins.
Sýningin opnar formlega kl. 16.00.
Edda Lilja mun vera með fyrirlestra og leiðsagnir um sýninguna 7.febrúar kl. 14:00 og 12.febrúar (Safnanótt) kl. 20.30






Teiknaðu og hannaðu þína eigin húfur!
Í tilefni af sýningunni 52 húfur á 52 vikum efnir Norræna húsið til hönnunarsamkeppni sem allir gestir sýningarinnar geta tekið þátt í.
Samkeppnin hefst kl. 14.00 7.febrúar næstkomandi, þegar Edda Lilja verður
með leiðsögn um sýninguna 52 húfur, og stendur til kl.17.00 14.febrúar.
Hleypið sköpunarkraftinum út - hannið og teiknið eigin húfur.
Þáttakendur teikna og hanna eigin húfu, setja teikninguna í sérmerktan kassa í Norræna húsinu.
Dómnefnd skipuð Ragnheiði Eiríksdóttur frá Knitting Iceland og Huldu Hákon frá Ístex velja verðlaunahúfuna sem verður síðan búin til af Eddu Lilju.
Úrslit verða tilkynnt 27.febrúar næstkomandi og sigurvegarinn fær þá húfuna afhenta.