Beint í leiðarkerfi vefsins.
Sýndar eru 32 ljósmyndir stækkaðar á álplötur. Allar myndirnar eru teknar á Íslandi og gefa áhorfandanum innsýn í þann mikla fjölbreytileika sem íslensk veðrátta býður upp á. Á myndunum gefur m.a. að líta náttúru, mannvirki, fólk og skepnur í samspili við ýmis blæbrigði veðráttunnar. Norræna húsið er opið fyrir almenning alla daga frá kl. 12 til 17. Sýningin stendur til 15. mars nk.