Beint í leiðarkerfi vefsins.
Sýningin verður opnuð laugardaginn 28. janúar kl. 18.00 með lifandi listviðburði, tónlist og léttum veitingum.
Segja má að sýningin tengi saman tvær kynslóðir götulistamanna í Reykjavík ásamt einum götulistamanni frá Danmörku. Markmið með sýningunni er að endurspegla þverskurðinn af því sem er búið að gerjast síðustu árin og hvernig götulistin hefur hoppað í gegnum vegginn og inní hefðbundið sýningarrými með tilheyrandi aðlögun.
Góða skemmtun!
Hægt er að skoða verk sýningarinnar hérListamenn sýningarinnar eru:
Andrea Helgadóttir
Er ein að upphafsmönnum götulistar á Íslandi og ein af fáum stelpum sem leggja stund á þessa list. Með auga fyrir fullkomnum hlutföllum og lifandi karaktersköpun hefur hún stimplað sér í sessi sem einn af bestu götulistamönnum landsins. Hún ber meðal annars ábyrgð á mikið af þeim stóru veggjum sem hafa verið málaðir hér í Reykjavík síðustu tvö árin.
Björn Árnason
Hann hefur tekið ljósmyndir frá árinu 2005, hann hefur haldið nokkrar einka og samsýningar. Bakgrunnur Björns er m.a. úr götulistinni og graffítí. Myndefni ljósmyndanna sækir Björn í umhverfið bæði í borgum og dreifbýli. Hann einblínir síðan á ákveðið svæði eða rými sem er partur af stórri heildarmynd.
Gebes
Einn af fremstu graffiti málurum Danmerkur, hefur málað víða um heim ásamt stærstu götulistamönnum í heimi. Vinnur með einföldum formum og sterkri stafabyggingu sem hann brýtur upp með mismunandi áferðum. Sækir innblástur úr hryllingsögum og útfærir skuggahliðir mannsins á gamansaman hátt.
Margeir Dire Sigurðarson
Hann stundaði nám á myndlistarbraut við Verkmenntaskólann á Akureyri, Myndlistarskólanum á Akureyri, Lahti institude of Fine arts og Art direction í IED Barcelona. Margeir hefur haldið 7 einkasýningar og tekið þátt í yfir 20 samsýningum um heiminn, hann hefur staðið fyrir live painting sýningum í Barcelona þar sem hann býr. Hann notast hvað mest við olíumálningu, akrýl og spray og notar fjölbreyttan efnivið. Myndefnið er það sem hann kallar Absorbism sem einkennist af taktföstum línum og hreinum formum sem skapa fígúratíft konsept með symbolísku ívafi. Innblástur sækir hann m.a. eðli náttúrunnar, tónlist, götulist, fólk og sögur.
Orri
Hefur fyrir löngu skipað sér í fararbroddi innan íslenskrar graffmenningar. Sækir innblástur í spænska/suður-ameríska myndlist þar sem feigðinni er fagnað á fallegan hátt. Skapar ljóslifandi einfalda karaktera og þegar því er blandað saman við flóknu flæðandi stafagerðina hans skapast göldrótt heild.
Ólafur Guðmundsson
Ferill hans kemur úr mörgum áttum hann stundaði um tíma nám í Willem de Kooning í Hollandi en einnig hefur hann bakgrunn úr götulist og graffítí. Hann hefur haldið nokkrar einkasýningur og tekið þátt í fjölda samsýninga og listahátíða.
Skúli Árnason.
Ungur Hafnfirðingur sem fékk námsstyrk til myndlistarnáms í Laguna Beach í BNA. Gerir "photorealístisk" verk þar sem hann blandar saman olíumálningu og úðabrúsum. Verk hans hafa alvarlegan undirtón en húmorinn er sjaldan langt í burtu, hann leikur sér mikið af málum í þjóðfélagsumræðunni án þess að taka persónulega afstöðu til þeirra.
Þorsteinn Davíðsson
Þorsteinn er úr Reykjavík hann útskrifaðist úr grafískri hönnun við LHÍ 2005. Í dag starfar hann við auglýsingargerð, myndskreytingu og eigin listsköpun. Graffiti, vatnslitir og silkiprent eru miðlar sem hafa verið ofaná hjá Þorsteini síðustu ár.
Þorsteinn hefur sýnt á fjölmörgum samsýningum og haldið eina einkasýningu til þessa.
Örn Tönsberg
Örn hefur bakgrunn í tónlist og götulist og hefur verið að mála og teikna frá unglingsárum. Upp á síðkastið hefur hann smátt og smátt verið að færa starfsemi sína innandyra, en myndefnið sækir hann þó enn af götum borgarinnnar og mannlífinu þar. Hann hefur haldið nokkrar sam- og einkasýningar en síðasta einkasýning hans var sýningin FuglOrðiðFólk í Gallerí Klósett.