Beint í leiðarkerfi vefsins.
Sýning á verkum úr Artóteki Norræna hússins er nú í anddyri Norræna hússins.
Listlánasafn Norræna hússins tók til starfa árið 1976. Það var fyrsta norræna listasafnið þar sem almenningi gafst kostur á að fá lánuð heim
listaverk.
Stofn listlánasafnsins var í upphafi 180 grafíkverk sem sérstök norræn innkaupanefnd keypti á stóru norrænu grafíksýningunni í Björgvin árið áður. Norræni menningarsjóðurinn lagði fram fé til þessara innkaupa.
Útlánsskilyrði listlánasafnsins eru hin sömu og gilda á bókasafninu. Þetta er einföld, lýðræðisleg og kostnaðarlaus aðferð til þess að njóta góðrar listar á eigin heimili.
Velkomin á listlánasafnið í Norræna húsinu.
13 verk úr safninu eru til sýnis:
01 – Processens forventninger III – Kurt Borge Simonsen
02 - Kanntu að nefna mig – Ríkharður Valtingojer
03 – Hommage á A. Paul Weber – Richard Valtingojer Jóhannsson
04 – Strandydill – Egil Röed
05 – Krater II – Hjördis Johansson-Becker
06 – Krater – Hjördis Johansson-Becker
07 – Orfeus og Eutydike, IIIV – Palle Nielsen
08 – Forces united – Ulf Valde Jensen
09 – Landschaft – Sigurður Guðmundsson
10 – Útsynningur – Anna Sigríður Björnsdóttir
11 – Haust – Sigrid Valtingojer
12 – Úr steinaríkinu – Björg Þorsteinsdóttir
13 – April 1972, III – Tonning Rasmussen