Viðburðir Sýningar

Sýning um upphaf og aðdraganda Listahátíðar 1970

  • Wednesday 12. May 2010 - Wednesday 30. June 2010

Listahatid---Dagskra---00---KapaÁ fjörtíu ára afmæli Listahátíðar er vert að rifja upp aðdraganda og tilurð fyrstu listahátíðarinnar sem haldin var í Reykjavík í júní 1970.

Ivar Eskeland var fyrsti forstjóri Norræna hússins sem opnaði í ágúst 1968. Hann var ötull talsmaður norrænar menningar og fékk fljótlega þá hugmynd að hér í Reykjavík ætti að koma á laggirnar norrænni listahátíð þar sem allt hið besta í norrænum listum yrði á dagskrá. Þessa hugmynd sína viðraði hann við Pál Líndal þáverandi borgarlögmann sem tók vel í hugmyndina og kynnti hana fyrir borgastjóra Geir Hallgrímssyni.

1) Á fundi, sem „Listahátíðin" hélt með blaðamönnum, skýrði Geir   Hallgrímsson,   borgarstjóri, frá því, að hugmyndin um Listahátíðina væri frá Ivari Eskeland komin, Það kom fram, að hugmyndin hefði verið kynnt borgarráði og hlotið þar góðar viðtökur. Stjórn Norræna hússins hefði einnig fjallað um málið og fallizt á að eiga hlut að undirbúningi og rekstri listahátíðarinnar. Þeir Hannes Davíðssom, forseti Bandalags íslenzkra listamanna, og Ivar Eskeland hefðu síðan kvatt til fundar fulltrúa ýmissa félagasamtaka og stofnana, sem afréðu að efna til listahátíðar í Reykjavík og leggja fram nauðsynlegt fjármagn.

Á sama tíma er hinn heimsfrægi píanósnillingur Vladimir Ashkenazy  að flytast til Íslands ásamt íslenskri konu sinni Þórunni Jóhannsdóttur og börnum. Hugmyndin um listahátíð er kynnt fyrir Ashkenazy sem verður strax hrifinn og hringir í nokkra vini sína sem einnig verða hrifnir af hugmyndinni og vilja ólmir koma til Íslands. Þar með breytast forsendur og norræn listahátíð verður að alþjóðlegri Listahátíð.

2) Vladimir Ashkenazy er hvað frægastur þeirra sem telja má til tengdabarna þjóðarinnar. Kona hans Þórunn Jóhannsdóttir fluttist reyndar með fjölskyldu sinni til London sex  ára gömul þar sem hún sjálf var undrabarn á píanó og þurfti að komast í almennilegan skóla, en hún hélt við tungumálinu og rótunum og leit á sig sem Íslending, enda var hún með íslenskan ríkisborgararétt fyrir utan þau fáu ár sem hún var sovéskur þegn. Áhrif Ashkenazys eru víðtæk. Hugmyndin að Listahátíð í Reykjavík er frá honum komin og fjöldi frábærra tónlistarmanna sem hingað kom, sérstaklega á fyrstu árum hátíðarinnar var beinlínis á hans vegum eða kom hingað vegna þess að fólk þekkti til hans sem píanósnillings. Hann fékk íslenskan ríkisborgararétt árið 1972 og bjó hér í einn áratug, á árunum 1968-1978 þar sem þau hjónin höfðu fengið nóg af erlinum sem fylgdi því að búa í London. Héðan fluttu þau síðan til Luzern í Sviss og sameinuðu með því friðsældina frá Íslandi og það að búa í hjarta Evrópu. Ashkenazy hefur einnig lengi verið mjög öflugur hvatamaður að byggingu tónlistarhúss í Reykjavík og ósmeykur við að láta í ljós vanþóknun sína á seinaganginum við að koma þeirri framkvæmd af stað. Nú þegar hillir undir húsið er hann strax farinn að nefna að koma hingað með erlendar gæðasveitir.

 

Listahátíð í Reykjavík fjörtíu ára.

 

 

Listahátíð í Reykjavík – The Reykjavík Festival – Festspillene i Reykjavik, eins og hátíðin nefndist stóð yfir frá 20. Júní – 1. Júlí 1970.

Á dagsskrá var aragrúi listviðburða út um allan bæ og flóran skannaði meðal annars: Leiklist, tónlist, myndlist, dans, bókmenntir, ljóð og byggingarlist.

Ef talin eru nokkur atriði má nefna helst:

Þjóðleikhúsið: Mörður Valgarðsson í leikstjórn Benedikts Árnasonar,  Piltur og stúlka í leikstjórn Klemenz Jónssonar og Bubbi kóngur frá Marionett teatern í Stokkhólmi.

Iðnó: Kristnihald undir jökli í umsjón Sveins Einarssonar. Þorpið eftir Jón úr Vör við tónlist Þorkels Sigurbjörnssonar.

Norræna húsið: Ýmsir tónleikar og vísnasöngur svo sem jazz, kammertónleikar  og klassík.

Háskólabíó: Tónleikar með Daniel Barenboim og Jacquline Du Pré. Hljómleikar með Victoria de los Angeles undir stjórn Vladimir Ashkenazy.

Laugardalshöll: Rokktónleikar með hljómsveitinni Led Zeppelin. Tónleikar með  Sinfóníuhljómsveit Íslands, André Previn einleikari og stjórnandi Vladimir Ashkenazy. Hljómleikar Sinfóníuhljómsveitar Íslands, stjórnandi  André Previn, einleikari Itzhak Perlman.

Iðnskólinn við Skólavörðutorg: Sýning á grafíkverkum eftir norska listamanninn Edvard Munch

Ásmundarsalur: Bresk grafík 1961 – 1966.

Myndlistarhúsið á Miklatúni: Íslensk Nútímalist.

Á sýningunni í Norræna húsinu gefur að líta dagskrár, úrklippur ú blöðum, ljósmyndir og annað efni tengt þessari fyrstu Listahátíð í Reykjavík.

 

Heimildir:

1) Listahátíð í Reykjavík næsta haust – Morgunblaðið 17. sept 1969.

2) Erlendir tónlistarmenn á Íslandi á 20. Öld Grein III: Breytt heimsmynd í kjölfar velmegunar - Ingibjörg Eyþórsdóttir.


Leita á vefnum





Þetta vefsvæði byggir á Eplica