Kontrabassaleikarinn Mark Dresser hefur hér stutta viðdvöl og leikur á tónleikum hér í húsinu laugardaginn 11. ágúst kl 17, einn og með gestum, auk þess að halda fyrirlestur daginn eftir á vegum Listaháskóla Íslands um tónlist sína. Allir velkomnir!
Mark er best þekktur fyrir samstarf sitt við Anthony Braxton, sem hann lék með í níu ár. Mark Dresser er án efa einhver magnaðasti kontrabassaleikari samtímans og hefur helgað líf sitt því að ná ofurmannlegum tökum á hljóðfærinu tæknilega auk þess að kafa djúpt í alla mögulega uppmögnunartækni.
Mark á auk þess farsælan feril sem tónskáld og verk hans er að finna bæði á hans eigin diskum og annarra, austan hafs og vestan.
Þá er hann eftirsóttur fyrirlesari af æðstu tónlistarsskólum heimsins eins og Julliard, konservatoríunum í París og New England og mörgum fleirum. Ekki má gleyma verðlaunaðri tónlist hans við klassískar þöglar kvikmyndir (The Cabinet of Dr. Caligari/Un Chien Andalou).