Beint í leiðarkerfi vefsins.
Skyggnst verður í skuggalegri hluta menningararfs þjóðarinnar í Norræna húsinu fimmtudaginn 9. febrúar kl. 20:30. Félagar úr Kammerkór Seltjarnarneskirkju flytja þjóðlög og önnur verk íslenskra tónskálda þar sem þjóðsagnaarfurinn er viðfangsefni.Að auki verður lesið úr þjóðsögum. Gestum Norræna hússins verður því boðið upp á nokkurs konar baðstofustemningu þar sem tónlist og frásagnir flétta skuggalega umgjörð um drauga, útilegumenn og myrkari öfl sem gægjast aftur úr fortíðinni þetta eina kvöld. Dagskráin hefst kl. 20:30 og er hluti af Vetrarhátíð í Reykjavík 2012. Stjórnandi er Egill Gunnarsson og meðleikari Friðrik Vignir Stefánsson.