Efnt er til danskra síðdegistónleika í Norræna húsinu sunnudaginn 11. mars kl. 15 í samvinnu við Reykjavik Folk Festival.
Tónlistarhátíðin Reykjavik Folk Festival er nú haldin í þriðja sinn en hún fer fram dagana 7.-10. mars á Café Rósenberg. Að þessu sinni koma nokkrar erlendar sveitir til landsins til að taka þátt í hátíðinni. Þeirra á meðal eru tvær danskar hljómsveitir. Af þessu tilefni verður efnt til danskra síðdegistónleika í Norræna húsinu þar sem fram koma feðgarnir Benjamin og Anders Koppel og hljómsveitin Kryss. Tónleikarnir hefjast kl. 15 og aðgangseyrir er 2.300 kr.
Benjamin Koppel og Anders Koppel
Benjamin Koppel er heimsþekktur saxofónleikari. Hann hefur hlotið fjölda viðurkenninga fyrir tónlist sína og hljóðfæraleik og er hefur gefið út yfir 30 geisladiska og komið fram á meira en 100 diskum til viðbótar. Koppel kemur fram víða um heim með minni og stærri hljómsveitum. Koppel hefur áður komið til Íslands og komið fram m.a. með Eyþóri Gunnarssyni og Sigurði Flosasyni.
Anders Koppel er einnig mjög þekktur tónlistarmaður í Danmörku, m.a. fyrir að vera einn stofnenda rokksveitarinnar Savage Rose og Bazaar tríósins. Anders Koppel er líka þekkt tónskáld og hefur samið tónlist við hundruð bíómynda, leikverka og söngleikja. Að auki hefur hann samið fjölda klassískra tónverka. Anders Koppel mun leika á flygil með syni sínum í Norræna húsinu.
Kryss
Kryss er alþjóðleg hljómsveit þó hún hafi sterkust tengsl við Danmörku. Hún var stofnuð í Færeyjum árið 2004 og hefur starfað saman síðan og komið víða fram. Hljómsveitina skipa þekktir tónlistarmenn í Danmörku og tónlistin er heimshornatónlist, eins og fjölbreyttur bakgrunnur tónlistarmannanna bendir til. Tónlistarmennirnir eru Pierre Dørge (Danmörk), Eskil Romme (Danmörk), Jullie Hjetland(Noregur), Irene Becker (Danmörk) og Ayi Solomon (Ghana).