Beint í leiðarkerfi vefsins.
Klassík í Vatnsmýrinni í Norræna húsinu 2010
"Gestir frá Ítalíu"
Miðvikudagskvöldið 24. mars kl. 20:00 fer kammertónleikaröð Félags íslenskra tónlistarmanna í samvinnu við Norræna húsið af stað öðru sinni. Flytjendur á þessum fyrstu tónleikum starfsársins verða ítölsku tónlistarmennirnir Natalia Benedetti á klarinett og Sebastiano Brusco á píanó. Þau munu flytja efnisskrá með vinsælum meistaraverkum fyrir klarinett og píanó. Aðgangseyrir á tónleikana er 1.500 kr. Ókeypis aðgangur fyrir alla undir 21 árs.
-
“Gestir frá Ítalíu” 24. mars kl. 20.00
Sebastiano Brusco er virtur píanóleikari í heimalandi sínu og kemur reglulega fram á tónleikum víða um heim. Hann hefur unnið til alþjóðlegra verðlauna, komið fram sem einleikari með hljómsveitum, t.d.Sinfóníuhljómsveitinni í Mílano og I Solisti Veneti. Sebastiano hefur frumflutt verk eftir Milhaud, Gould, Tossati o.fl. Hann er meðlimur Bernini kvartettsins í Róm og vinnur náið með rússneska fiðluleikaranum Vadim Brodsky.
Natalia Benedetti hefur unnið til fjölda verðlauna fyrir leik sinn í heimalandi sínu en hún lauk námi í klarinettleik með hæstu einkunn árið 2005 frá Tónlistarháskólanum í Perugia. Henni hefur verið boðið að koma fram á tónlistarhátíðum svo sem Feneyjatvíæringnum, Spoleto og Edinborgarhátíðinni. Á Elliot Carter hátíðinni í Feneyjum 2008 lék hún m.a. með Ursulu og Heinz Holliger. Natalía er listrænn stjórnandi tveggja tónlistarhátíða í Bevagna.
Sebastiano Brusco og Natalia Benedetti hafa starfað saman um nokkurt skeið á alþjóðlegum vettvangi.
Efnisskrá tónleikanna 24. mars:
Camille Saint- Saëns: Sónata fyrir klarinett og píanó op. 167 (1921)
Allegretto
Allegro animato
Lento
Molto allegro
Robert Schumann Fantasiestücke op. 73 (1837)
Zart und mit Ausdruck
Lebhaft,leicht
Rasch und mit Feuer
Francis Poulenc: Sónata fyrir klarinett og píanó (1962)
Allegretto
Romanza
Allegro con fuoco
Leonard Bernstein: Sónata fyrir klarinett og píanó (1941-42)
Grazioso
Andantino-vivace e leggiero.
Um tónleikaröðina
Klassík í Vatnsmýrinni er tónleikaröð Félags íslenskra tónlistarmanna í samvinnu við Norræna húsið með áherslu á norrænt og alþjóðlegt samstarf. Markmiðið með tónleikaröðinni er að gefa áheyrendum tækifæri til að hlýða á fyrsta flokks innlenda og erlenda listamenn með áherslu á “einleikarann” annars vegar og “kammertónlist” hins vegar. Til ánægjuauka fjalla flytjendur um efniskrána á tónleikunum.
Tónleikar þessir eru að jafnaði á miðvikudagskvöldum. Í ár er innan vébanda tónleikaraðarinnar haldin norræn tónlistarhátíð dagana 10.-12. júní í tilefni af 70 ára afmæli FÍT.
Starfsárið 2010 býður upp á tónleika með erlendum einleikurum í samvinnu við norræn einleikarafélög, ítalska tónleikahaldara og með íslensku listafólki úr röðum félagsmanna. Aðgangseyrir á tónleikana er 1.500 kr og er sérstaklega hvatt til aðsóknar ungs fólks með því að veita öllum undir 21 árs aldri ókeypis aðgang að tónleikunum.
Stjórn tónleikaraðarinnar sér um framkvæmd og skipulagningu auk listrænnar stjórnunar. Tónleikastjórn skipa: Sigurður Bragason, Guðrún Sigríður Birgisdóttir og Jón Sigurðsson.
Klassík í Vatnsmýrinni
í Norræna húsinu 2010
Aðrir tónleikar á starfsársinu:
“Suður mætir Norðri” - Norræn tónlistarhátíð 10. – 12. júní
í samstarfi við Nordisk solistråd með styrk frá Norrænu menningargáttinni
Fimmtudagur 10. júní kl. 20:00
Föstudagur 11. júní kl. 20:00
“NordSol” tónleikar
Einleikarar frá Norðurlöndum
Laugardagur 12. júní kl. 16:00
“Tangó tekur völdin”
Tónleikar úr smiðju Olivier Manoury
Miðvikudagur 22. september kl. 20:00
“Strengleikar”
Laufey Sigurðardóttir, fiðla
Elísabet Waage, harpa
Miðvikudagur 20. október kl. 20:00
“Hrosshár í strengjum...”
Hlíf Sigurjónsdóttir, fiðla
Dagatal
Klassík í Vatnsmýrinni
í Norræna húsinu 2010
Aðrir tónleikar á starfsársinu:
“Suður mætir Norðri” - Norræn tónlistarhátíð 10. – 12. júní
í samstarfi við Nordisk solistråd með styrk frá Norrænu menningargáttinni
Fimmtudagur 10. júní kl. 20:00
Föstudagur 11. júní kl. 20:00
“NordSol” tónleikar
Einleikarar frá Norðurlöndum
Laugardagur 12. júní kl. 16:00
“Tangó tekur völdin”
Tónleikar úr smiðju Olivier Manoury
Miðvikudagur 22. september kl. 20:00
“Strengleikar”
Laufey Sigurðardóttir, fiðla
Elísabet Waage, harpa
Miðvikudagur 20. október kl. 20:00
“Hrosshár í strengjum...”
Hlíf Sigurjónsdóttir, fiðla