Viðburðir Tónleikar
strengir_mynd

15 15 sunnudaginn 10 apríl.

Frédérique Friess sópran sem tilnefnd var bjartasta vonin af ungum
söngvurum í óperutímaritinu Opernwelt 2003, syngur ásamt Ólöfu
Sigursveinsdóttur sellóleikara og Hrönn Þráinsdóttur píanóleikara í 15:15
tónleikasyrpunni í Norræna húsinu sunnudaginn 10. apríl kl. 15:15.

Tónleikarnir eru tileinkaðir minningu Sigursveins D. Kristinssonar á 100
ára afmæli hans en einnig verða flutt verk eftir Nadia Boulanger, Robert
Schumann, Francis Poulenc, Franz Schubert, Charles Gounod, Erik Satie og
Claude Debussy.

Gætuð þið vinsamlegast breytt upplýsingunum á heimasíðunni?
Nánar hér að neðan,

kærar þakkir,
kv. Eydís Franzdóttir.
_________________________________

"Byrjun sólmánaðar skollaskálin alhvít og Skútudalurinn.."

Frédérique Friess, sópran
Ólöf Sigursveinsdóttir, selló
Hrönn Þráinsdótti, píanó

Á tónleikunum er í öndvegi verk Sigursveins D. Kristinssonar, Romanza
fyrir selló og píanó en Sigursveinn hefði orðið 100 ára þann 24. apríl nk.
Yfirskriftin, "Byrjun sólmánaðar, skollaskálin alhvít og skútudalurinn.."
er tilvitnun í grein sem hann ritaði árið 1959 þegar hann lagði grunn að
félagi fatlaðra en Sigursveinn var fremstur í flokki stofnenda
Sjálfsbjargar ásamt því að vera tónskáld og uppeldisfrömuður í tónlist.
Romanza er eina verkið sem Sigursveinn samdi fyrir selló en hann er
þekktastur fyrir söngljóð sín.

Söngkonan Frédérique Friess er fædd í Strassbourg á mörkum landamæra
Þýskalands og Frakklands og mun á þessum tónleikum túlka ljóð frá þessum
tveimur löndum. Þar stendur upp úr Widmung op. 24 eftir Robert Schumann og
Apres un Réve eftir Gabriel Fauré en á tónleikunum má heyra úrval
söngljóða sem lýsa ólíkum stílum franska ljóðsins. Ólöf Sigursveinsdóttir
mun kynna franska tónskáldið Nadia Boulanger með þremur verkum fyrir selló
og píanó en Nadia kenndi fjölmörgum tónskáldum 20. aldarinnar en skyldi
eftir sig merkar tónsmíðar sem eru sjaldan fluttar. Einnig munu Ólöf og
Hrönn flytja Verk í þjóðlegum stíl (Fünf Stücke im Volkston) eftir
Schumann. Saman ljúka ljúka þær dagskrá tónleikanna með því að flytja hið
fagra kammerverk, Hirt auf dem Felsen eftir austurríska tónskáldið, Franz
Schubert í útsetningu fyrir sópran, selló og píanó.

Frédérique Friess nam söng við Conservatoire National í heimaborg sinni
Straßburg, síðar við Conservatorio Giuseppe Verdi á Ítalíu og við
tónlistarháskólann í Stuttgart. Hún var virk söngkona meðan á námi stóð,
söng m.a. við Opéra National de Rennes og við Teatro dell' Opera í Róm.
Tónleikaferðir fór hún m.a. til Bregenz, Parísar, Feneyja og Mílanó þar
sem hún söng við Scala. Frá 2001 til 2003 var hún fastráðin við
Ríkisóperuna í Hamborg og var tilnefnd sem bjartasta vonin af ungum
söngvurum það ár í óperutímaritinu Opernwelt. En Opernwelt er virtasta
tímarit á sviði óperu í Þýskalandi. 2003/2004 söng hún við Þjóðaróperuna í
Mannheim, söng þar m.a. hlutverk Sophie í Rósariddaranum og Despinu í Così
fan tutte, Serviliu í La clemenza di Tito og Venus í Ascanio eftir Mozart.
Í Oktober 2006 varð hún prófessor við Tónlistarháskólann í Stuttgart og
syngur jafnframt við óperuna í Bæjaralandi. Meðal hlutverka hennar á
næstunni má nefna Tatjönu í Eugen Onegin eftir Tschaikowsky, Anninu í Nótt
í Feneyjum og Serviliu íTitus. Í nóvember sl. söng hún sópranhlutverkið í
Brahms Requiem með MDR - Útvarpshljómsveit og kór þýska útvarpsins og í
mars sl. söng hún hlutverk Desdemonu í óperu Verdis, Otello. Frédérique
hefur einnig verið virk á sviði kammertónlistar og hefur sungið inná
upptökur fyrir suðurþýska útvarpið verk eins og Sjö rómönsur fyrir sópran
og píanótríó eftir Shostakovich og strengjakvartett op. 10 með sópran
eftir Schönberg einnig Das Buch der hängenden Gärten fyrir píanó og
sópran.  Á næstunni mun hún syngja sinfóníu nr. 4 og Die Kindertotenlieder
eftir Gustav Mahler.

Ólöf Sigursveinsdóttir hóf kornung að læra á selló. Kennarar hennar voru
Nora Kornblueh og Bryndís Halla Gylfadóttir við Tónskóla Sigursveins D.
Kristinssonar og Gunnar Kvaran við Tónlistarskólann í Reykjavík. Eftir
eitt ár sem fastráðinn hljóðfæraleikari við Sinfóníuhljómsveit Íslands
hélt Ólöf til Stuttgart í Þýskalandi þar sem hún innritaðist í
einleikaradeild Listaháskólans og útskrifaðist þaðan með með
einleikarapróf 2001 með hæstu einkunn. Kennari hennar var Prof. Hans
Häublein. Ólöf hefur haldið einleikstónleika í Danmörku, Þýskalandi, Sviss
og á Íslandi og tekið þátt í fjölmörgum tónlistarverkefnum víðsvegar í
Evrópur s.s. með Orpheus Musiktheater, Bachsveitinni í Skálholti og Freie
Kammerphilharmonie. Ólöf hefur verið virk á sviði kammertónlistar og
samvinna hennar með Margréti Hrafnsdóttur, sópran leiddi til úgáfu á
geisladiski þeirra, Hjartahljóð - íslensk þjóðlög sem gefinn var út 2007
og hlaut afar góðar viðtökur. Árið 2005-2007 hlaut Ólöf styrk frá þýska
ríkinu til að leggja stund á nám í útvarpsfræðum við Tónlistarháskólann í
Karlsruhe. Sem stendur leikur Ólöf með Sinfóníuhljómsveit Íslands og
kennir á selló í Reykjavík og á Álftanesi. Í febrúar sl. hélt hún í
tónleikaför til Stuttgart, Berlínar og Winterthur m.a. til að kynna
íslensk verk og ásamt Margréti Hrafnsdóttur frumflutti hún verkið Heimtur
eftir Ingibjörgu Guðlaugsdóttur í sendiráðinu í Berlín.

Hrönn Þráinsdóttirpíanóleikari hóf nám við Tónmenntaskólann í Reykjavík 7
ára gömul hjá Erlu Stefánsdóttur. Hún stundaði nám við Tónlistarskólann í
Reykjavík á árunum 1991-1998 hjá Jónasi Ingimundarsyni og lauk þaðan
burtfararprófi. Þá var förinni heitið til Þýskalands þar sem hún stundaði
nám við tónlistarháskólann í Freiburg og lauk þaðan Diploma kennaraprófi
með ljóðaundirleik sem aukafag vorið 2004. Kennarar hennar voru Prof. Dr.
Tibor Szasz í píanóleik og Prof. Hans-Peter Müller í ljóðaundirleik. Að
því loknu stundaði hún nám við tónlistarháskólann í Stuttgart undir
handleiðslu Prof. Cornelis Witthoefft þar sem hún lauk sumarið 2007
sérhæfðu Diploma námi í ljóðasöngdeild skólans. Hrönn hefur komið fram á
tónleikum víða, meðal annars í Þýskalandi, Austurríki, Ítalíu og á Íslandi
sem einleikari, meðleikari og í kammertónlist. Auk þess hefur hún sótt
mörg námskeið (masterclassa) og tekið þátt í tónlistarhátíðum m.a. UNM
(Ung Nordisk Musik) sem fór fram árið 1997, 2002 og 2007 í Reykjavík.
Hrönn er meðlimur kammersveitarinnar Ísafoldar sem tilnefnd var til
íslensku tónlistarverðlaunanna árið 2005, en sveitin var stofnsett árið
2003 og hefur Hrönn verið meðlimur frá árinu 2004.

Miðaverð er  1500 en 750 fyrir eldri borgara, öryrkja og námsmenn.


Nánari upplýsingar veitir Ólöf Sigursveinsdóttir í síma: 615-2231